|
Notkunastaðir
á stóðhestum 2010:

©
Sandra Marin
KVISTUR FRÁ SKAGASTRÖND:
Það
er frágengið að Kvistur frá Skagaströnd
verði hér hjá okkur á Brúnum í sumar og mun
koma hingað strax eftir landsmót. Okkur
hefur lengi langað til að halda undir
kappann og erum alsæl með að fá hann
hingað. Í fyrrasumar höfðum við bróður
hans, Kompás frá Skagaströnd en þeir eru
báðir undan gæðingamóðurinni Sunnu frá
Akranesi en nánari upplýsingar um þá ræktun
alla er á www.sunnukvistir.is. Kvistur náði
þeim frábæra áfanga að fá 9.0 fyrir tölt,
brokk, skeið og vilja. Þetta er mikill
höfðing með 8.26 fyrir byggingu og 8.79
fyrir hæfileika og er undan Hróð frá Refstað
sem fékk heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á
síðasta landsmóti.
Folatollurinn er kr.145.000 og innifalið í
því er hagagjald, virðisaukaskattur og ein
sónarskoðun. Við tökum niður pantanir í
símum 4627288 og 8631470 og í póstfangið einarg@est.is.
KOMPÁS
FRÁ SKAGASTRÖND:
Laus til
útleigu

|